top of page

Óvæntur félagi á samfélagsmiðlum

Í lokuðum hópi á Facebook sá ég færslu frá einum félaga sem var greinilega í mikilli angist

yfir því sem hún var að gera. Ég tengdi strax og setti mig í samband við hana í skilaboðum. Þetta var Liz Florentino að skrifa bókina sína um sársaukafulla reynslu eftir alvarleg mistök/ofbeldi læknis. Eftir stutt spjall sáum við báðar að við vorum að gera það sama og reynsla okkar sló í takt. Bókin hennar kom út á Amazon í janúar 2025 g ber þennan snjalla titil Angels, Bullies, & Brick Walls: Lessons from Surviving Medical Malpractice“ 

Bókarkápan er einstaklega lýsandi fyrir þessa vegferð okkar, reiðin, sorgin en sáttin sú sama eftir langa baráttu sem var óumflýjanleg fyrir bata okkar beggja. Ljónið þagnar ekki. Ég mæli eindregið með lestri enda er húmorinn einkennandi í textanum sem hjálpar mikið í þessum átökum. 

Sjálfsefling og bataferli

Í stuttu máli er bókin persónuleg reynslusaga og réttindabarátta sem veitir innsýn í hindranirnar sem fólk mætir eftir læknismistök, en býður um leið upp á hagnýt ráð og stuðning fyrir þá sem þurfa að rata í gegnum svipaðar aðstæður.

Höfundurinn deilir lærdómi sínum (e. lessons from surviving) um hvernig gott er að standa með sjálfum sér (e. self-advocacy), vinna úr áföllum og nýta erfiða reynslu til að beita sér fyrir bættu öryggi sjúklinga.

Comments


Hafa samband
​

Velkomin á síðuna mína — endilega hafðu samband ef þú vilt eiga samstarf eða skipast á skoðunum.

​

  • Facebook
Fylgjast með á facebook
bottom of page